LYFJATÆKNAR

útskrifaðar 2008

05.05.2009 20:55:35 / heilbrigdar

Einhver sem les þetta ennþá?

Hvernig er þetta, er ekki kominn tími til að hittast? Út að borða eða eitthvað. Það hefur verið gefið í skyn að stelpurnar sem koma á eftir okkur séu skemmtilegri en við......
Ég er ekki alveg tilbúin að sættast á það:!:

Þórdís



» 1 hafa sagt sína skoðun

16.03.2009 21:47:20 / heilbrigdar

Allar að mæta

Lyfjatæknafélag Íslands

Aðalfundur Lyfjatæknafélags Íslands

verður haldinn miðvikudaginn 18. mars 2009 kl 20.00

í Lyfjafræðisafninu við Neströð, Seltjarnarnesi.



Léttur kvöldverður verður klukkan 19 og er óskað eftir að félagsmenn skrái sig í hann (sjá neðar)

Kvöldverðurinn er í boði Imogaze og Nicorette





Dagskrá:

Dagskrá aðalfundar:

Venjuleg aðalfundarstörf.

Kosning fundarstjóra og teljara.
Fundargerð síðasta aðalfundar lesin.
Skýrsla stjórnar og starfandi nefnda um starf félagsins á liðnu ári
Skýrsla stjórnar
Reikningar félagsins lagðir fram.
Ákvörðun félagsgjalda
Kosning í stjórn og nefndir
Kosning formanns
Kosning varaformanns
Kosning gjaldkera
Kosning í frétta og fræðslunefnd
Önnur mál.
Einfaldur meirihluti gildir um kjör og tillögur nema öðruvísi sé ákveðið. Standi atkvæði jöfn, skal hlutkesti ráða við kjör, en tillaga telst fallin.





Stjórn: Gefur kost á sér

Formaður:

Kristín Skjaldardóttir hættir Guðrún Björk Þrastardóttir

Varaformaður:

Lovísa Sigrún Svavarsdóttir hættir Jórunn Magnúsdóttir

Gjaldkeri:

Ragnheiður Ríkharðsdóttir hættir Vantar

Ritari:

Sigrún Guðmundsdóttir Áfram

Meðstjórnandi:

Guðlaug Edda Siggeirsdóttir Áfram

Varastjórn:

Ásta Sóley Sölvadóttir Áfram

Eva Björk Ásgeirsdóttir Áfram

Vantar









Félagsmenn sem hafa áhuga á að koma í kvöldverðinn áður en fundur hefst, eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig hjá Kristínu formanni, á netfangið k.skj@simnet.is eða í síma 864-5419 í síðasta lagi mánudaginn 16. mars.



Við hvetjum sem flesta til að mæta og minnum á að það erum við félagsmenn, sem höldum félaginu okkar á lofti. Nú er líka brýnt að félagið nái fullum styrk aftur og starfi okkar verði haldið á lofti og að við minnum á okkur sem fagstétt. 


Koma svo allar að mæta... ekki leiðinlegt að fá fría máltíð í kreppunni :haha:







» 2 hafa sagt sína skoðun

13.01.2009 22:07:10 / heilbrigdar

Lyfjatæknir

Jæja, hverjar eru orðnar löglegir lyfjatæknar?? 
S.s. sráðar lyfjatæknar í símaskránn:lol: 
Er að fara ganga frá umsókninni minni til Landlæknisembættisins
-vildi bara nota tækifærið og minna ykkur á þetta :)
Ingz

» 6 hafa sagt sína skoðun

21.12.2008 14:02:40 / heilbrigdar

TIL HAMINGJU TÆKNAR

Jæja þá er þetta búið.... mar er alveg farin að sakna ykkar strax :cry: nú verðum við að vera duglegar að fylgjast reglulega með síðunni svo við missum ekki af e-u skemmtilegu :d
En enn og aftur til hamingju með útskriftina, vona að þið hafið skemmt ykkur vel um kvöldið

kv. Bynhildur

» 7 hafa sagt sína skoðun

13.12.2008 14:18:39 / heilbrigdar

Útskrift 2008

Dagskráin okkar!

Æfing uppí Háskólabíói, fimmtudaginn 18.des kl.16.

Rósirnar okkar verða tilbúnar í
"Blómabúðinni á horninu" 
Miklubraut 68
kostar ca. 1000 kr.-
~hver og ein sækir sína rós rétt fyrir útskriftina~

Útskrift í Háskólabíó kl. 16, föstudaginn 19. des


TÆKLINGAR ORÐNIR AÐ TÆKNUM !
PARTÝ UM KVÖLDIÐ



» 7 hafa sagt sína skoðun

07.12.2008 20:39:08 / heilbrigdar

Rauð Rós

Rauð rós 
verður útskriftarblómið okkar:haha:http://www.bbc.co.uk/china/learningenglish/specials/images/1057_valentine/311135_red_rose.jpg

Hugmyndin er að hver og ein sækir sitt blóm úr blómabúð 
sem við munum panta allar rósirnar í, 
svo þær verði eins. 

Þá er spurning um blómabúð, 
Sveinbjörg þekkir til í blómabúðinni í Hlíðunum 
Er þetta ekki bara málið??


» 18 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 21:05:49 / heilbrigdar

Hittingur

Fimmtudaginn 4.des
stefnum við á hitting
á Fridays
kl.19


Þetta er örugglega síðasti hittingurinn fyrir útskrift svooo höfum góða mætingu á þetta!!







» 8 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 22:09:18 / heilbrigdar

Alveg að bresta á

Jæja dömur á máunudag mun koma í ljós úr hverju við erum gerðar og hvort við séum hæfar til þess að verða lyfjatæknar.
Gangi ykkur vel að lesa fyrir prófið og í prófinu sjálfu. Kannski rekst maður á ykkur þá eða þegar einkunnir eru sóttar. Bara ekki leggja hjá Agli Árnasyni, þá verður kallað á eftir ykkur og þið fáiði hótunarmiða á bílrúðuna.:cry:

Orðin of sein á James Bond
Þórdís



» 18 hafa sagt sína skoðun

29.10.2008 09:44:18 / heilbrigdar

Alveg týnd....!!!

8| hvað fenguð þið út úr þynningardæminu sem á að vera í fræðilega hlutanum með skyndilyfjunum ??? ég er ekki að finna það út hvernig á að reikna þetta !!! plllíííísss getur e-r hjálpað mér :$
Svo var ég að spá í hvort það væri hægt að taka DJAMM 5 eða 6 des, skólinn búinn og nægur fyrirvari...?? hvað segiði smá upphitun fyrir útskriftardjammið :p

koma svo kommenta á þetta,
kv, Brynhildur

» 7 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 15:41:05 / heilbrigdar

Föstudagsdjamm

Föstudaginn17.október 
stefnum við á hitting heima hjá Signý(er þaggi þéttpott Signý?)

Væri frábært að fá comment um mætingu fyrir föstudaginn:)

» 8 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 15:40:37 / heilbrigdar

Föstudagsdjamm

Föstudaginn17.október 
stefnum við á hitting heima hjá Signý(er þaggi þéttpott Signý?)

Væri frábært að fá comment um mætingu fyrir föstudagin:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2008 16:26:37 / heilbrigdar

jæja ætlum við ekkert að reyna að hittast áður en að þið útskrifist??

Já....hvað er að gerast????.það verður að fara að gera eitthvað í þessum málum.....
ALLIR AÐ TJÁ SIG MEÐ COMMENTUM HÉRNA...KOMA SVO!!!!!!!!!!!!


Kv; Huggus


» 11 hafa sagt sína skoðun

15.09.2008 23:29:23 / heilbrigdar

Afmælisbarn

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ
ELSKU RAKEL OKKAR!!!

http://www.happybirthdaycomments.net/myspace-comments/cat/happy-birthday/happy_birthday_sexy_man.gif

~vonandi áttiru yndislegan dag árinu eldri~

Kveðja frá Tæklingunum


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 19:45:36 / heilbrigdar

Oy with the poodles already

Jæja konur, hvernig líkar ykkur svo í starfsnáminu? Ég er enn svolítið vængbrotin enda búin að koma mér svo vel fyrir í Breiðholtinu, tekur smá tíma að venjast nýjum stað, nýju fólki og nýjum kúnnum:$ En þetta er allt að koma vonandi.

Mætti nú alveg fara færast meira líf í þessa síðu nú þegar lætin eru byrjuð;).
kv Þórdís í Glæsibæ

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.08.2008 21:51:48 / heilbrigdar

And here we go again.....

:$ Jæja dömur vitiði eitthvað hvernig þetta verður allt saman...? Förum við ekki á fund uppí skóla einhvern tímann á næstunni ??? Eruð þið að pælíþví að eftir nokkra mánuði verðum við útskrifaðar :þ engin skólaleti lengur....:s hmm alvara lífsins tekur við, aldrei búin fyrir hádegi aftur engar karamellur og coke í dós í morgunmat eg ekki hægt að lúlla lengur til 5 mín í 8 eða bara yfir 8 who cares !!!!
En já hvað eruð þið pjötlurnar búnar að brasa í sumar ??? e-r spennó kjaftasögur ??
(Bloggið er náttla búið að vera alveg jafn virkt og mar átti von á í sumar)
Well verða fara gera eitthvað í vinnunni......sí U soon  Bibba

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Lyfjatæknar
Útskrifaðar 19.des 2008 í Háskólabíói
Myndasíða Möggu